Lubbi finnur málbein
Haustið 2015 byrjuðum við í Sólhvörfum að vinna með verkefni sem tengist læsi og málörvun. Margir kannast kannski við bókina Lubbi finnur málbein sem kom út fyrir nokkrum árum. Mikið hefur verið framleitt af fylgiefni sem við erum að nýta okkur í samveru, málörvunarstundum og víðar. Hugmyndasmiðirnir á bak við Lubba, Þóra Másdóttir og Eyrún Ísfold Gísladóttir, eru talmeinafræðingar sem hafa áralanga reynslu af talþjálfun barna. Námsefnið býður upp á nýja framsetningu á íslensku málhljóðunum og leggur góðan grunn að lestrarnámi auk þess sem það stuðlar að betri orðaforða og ýtir undir skýrari framburð.
Lubbi er íslenskur fjárhundur sem langar til að læra að tala en þá þarf hann að læra öll íslensku málhljóðin. Það sem hundum finnst best er að naga bein og er Lubbi engin undantekning. Þess vegna líta málhljóðin út eins og bein sem Lubbi nagar og lærir þannig smátt og smátt að tala. Hann þarf hins vegar góða aðstoð við að læra málhljóðin og ætla krakkarnir að aðstoða hann með söng og ýmsum öðrum æfingum.
Yfir skólaárið er unnið með eitt málhljóð í hverri viku sem hvert er táknað með litlum og stórum bókstaf. Í bókinni Lubbi finnur málbein ferðast Lubbi vítt og breitt um Ísland í leit að málbeinum. Öll málhljóðin eiga sér ákveðið tákn en með því að tengja hljóð við táknræna hreyfingu auðveldar það börnunum að læra það og muna. Hverju málhljóði fylgir lag sem börnin æfa á deildum og koma svo saman í söngstund og syngja saman. Þetta eru skemmtileg lög sem auðvelt er að læra utanbókar og börnunum hefur greinilega þótt gaman að syngja lögin og tákna hljóðin um leið. Grunnur er lagður að umskráningu: hljóð - stafur - orð