Sjálfbærni og vísindi
Á skólaárinu 2014 – 2015 unnu leikskólar í Kópavogi að sameiginlegu þróunarverkefni undir yfirskriftinni Sjálfbærni og vísindi. Verkefnið var samvinnuverkefni 19 leikskóla.
Markmið verkefnis:
Auka áhuga og skilning leikskólabarna á sjálfbærni, í hverju hún felst og hvernig þau geta átt þátt í eða haft áhrif á að bæta það umhverfi sem þau búa í.
Efla efla forvitni og áhuga á töfraheimi vísindanna og því sem leynist í eiginleikum ýmissa efna og hluta.
Auka hæfni og þekkingu starfsmanna á viðfangsefninu og styrkja þá í starfi sínu með börnunum.
Hver leikskóli fyrir sig ákvað viðfangsefni sitt og var verkefnastjóri í hverjum leikskóla sem hélt utan um verkefnið en Gerður aðstoðarleikskólastjóri gegndi þessu hlutverki í Sólhvörfum.
Misjafnt var hvað leikskólarnir tóku fyrir en meðal þess sem var unnið með var nærumhverfið, útikennsla, moltugerð, stjörnur og himintungl, Fossvogsdalurinn, Elliðavatn og náttúra þess, Borgarholtið, vísindi í allri sinni fjölbreytni og fjaran.
Læsi er meira en stafa staut
Leikskólar í Kópavogi unnu í vetur að verkefnum tengdum máli og læsi í tengslum við verkefnið "Læsi er meira en stafa staut". Verkefnið gekk mjög vel og höfuð börn, foreldrar og starfsfólk leikskólanna gagn og gaman af en afraksturinn var sýndur á opnum húsum leikskólanna í vor.
Verkefnið á upphaf að rekja til þess þegar Kópavogsbær skrifaði undir þjóðarsáttmála (2015) um umbætur í menntun, með áherslu á læsi. Í kjölfarið fór fram vinna við gerð læsisstefu fyrir leik- og grunnskóla í Kópavogi sem leit dagsins ljós um mitt ár 2016.
Þó leikskólinn hafi lengi sinnt mál- og læsisörvun vel var ákveðið að skerpa ennfrekar á þeirri vinnu og gera hana sýnilegri. Nýlegar rannsóknir sýna að ef börn fá snemma fjölbreytta örvun tengda máli, tjáningu og læsi hefur það mikil áhrif á áhuga og getu þeirra í námi og þroska. Ábending kom frá leikskólasamfélaginu um að allir leikskólar myndu taka sig saman og vinna að verkefnum tengdum máli og læsi skólaárið 2016-2017. Þróunarsjóður leikskóla styrkti verkefnið.
Markmið og tilgangur verkefnisins
Leggja öflugan grunn að þróun bernskulæsis hjá börnum
Efla fjölbreytta vinnu með alla þætti máls, tjáningar og læsis í leik og skapandi starfi barna
Auka hæfni og þekkingu starfsmanna á viðfangsefninu og styrkja þá í starfi sínu