Foreldraráð skipa 3 -4 foreldrar sem kosnir eru að hausti til eins árs í senn.
Hlutverk foreldraráðs :
- Að gefa umsögn til leikskólans og leikskólanefndar um skólanámskrá og aðrar áætlanir sem varða skólahald.
- Fylgjast með framkvæmd áætlana og að þær séu kynntar foreldrum.
- Koma á framfæri sjónarmiðum og hugmyndum foreldra til skólastjórnenda og starfa með þeim að hagsmunum barna og skólans.
Um foreldraráð í lögum um leikskóla frá 2008.
IV. kafli. Foreldrar og foreldraráð.
11. gr. Foreldraráð.
Kjósa skal foreldraráð við leikskóla og skal leikskólastjóri hafa frumkvæði að kosningu í ráðið. Í foreldraráði sitja að lágmarki þrír foreldrar. Skal kosning til foreldraráðs fara fram í september á ári hverju og skal kosið til eins árs í senn. Foreldraráð setur sér starfsreglur. Leikskólastjóra ber að starfa með foreldraráði. Leikskólastjóri getur sótt um undanþágu til sveitarfélags um stofnun foreldraráðs ef gildar ástæður eru fyrir hendi, svo sem vegna fámennis í leikskóla.
Hlutverk foreldraráðs er að gefa umsagnir til leikskóla og nefndar, sbr. 2. mgr. 4. gr., um skólanámskrá og aðrar áætlanir sem varða starfsemi leikskólans. Þá skal ráðið fylgjast með framkvæmd skólanámskrár og annarra áætlana innan leikskólans og kynningu þeirra fyrir foreldrum. Foreldraráð hefur umsagnarrétt um allar meiri háttar breytingar á leikskólastarfi.
Foreldraráð Sólhvarfa skólaárið 2025-2026
Formaður:
Elísabet Edda (Goðheimar)
Gjaldkeri:
Arna (Ásheimar)
Meðstjórnendur:
Ásthildur (Ásheimar)
Ástrós (Ásheimar)
Eyrún (Álfheimar/Glaðheimar)
Kolbrún (Þrymheimar)
Ragnhildur (Álfheimar/Goðheimar)
Þórey (Glaðheimar/Þrymheimar)