Á grunni aðalnámskrár, námskrár leikskóla Kópavogs og lögum um leikskóla nr. 90/2008 mótar hver leikskóli sína skólanámskrá. Skólanámskrá fjallar um þau gildi sem starf leikskólans byggist á og þá hugmyndafræði sem tekið er mið af. Í skólanámskrá eiga einnig að koma fram þær áherslur og leiðir sem leikskólinn hefur ákveðið að fara í samskiptum við börn, starfsfólk, foreldra og nærsamfélagið. 

Tilgangur skólanámskrár er: 

  • Að skipuleggja uppeldi og nám barna 
  • Að stuðla að skilvirkara starfi 
  • Að gera leikskólastarfið sýnilegra