Börn og foreldrar sem á þurfa að halda eiga að hafa aðgang að samþættri þjónustu við hæfi án hindrana. Samþætt þjónusta í þágu barna hefur það markmið að skapa heildarsýn og ramma um þau þjónustukerfi sem skipta mestu máli fyrir farsæld barns.
Með samþættingu þjónustu fylgja engin ný úrræði heldur fjallar hún um það hvernig þeir ólíku þjónustuaðilar sem koma að börnum og fjölskyldum eiga að vinna saman að málum þeirra og leita saman að lausnum til að mæta þörfum hverju sinni.
Markmiðin með samþættingu þjónustu er að samstarf í kringum börn og fjölskyldur sé í skýrum farvegi og tryggt að barnið sé hjartað í kerfinu.
Hér eru ítarlegri upplýsingar um farsæld barna
Tengiliðir
Öll börn og foreldrar skulu hafa aðgang að tengilið þjónustu í þágu farsældar barns eftir því sem þörf krefur. Hlutverk tengiliðar er fyrst og fremst að veita upplýsingar, aðstoða foreldra og barn og styðja við samþættingu á fyrsta stigi við í samræmi við óskir foreldra. Foreldrar geta sjálfir leitað beint til tengiliðar eða sent beiðni í gegnum Þjónustugátt Kópavogsbæjar .
Tengiliður í Sólhvörfum er:
Ingibjörg Birna Sveinsdóttir - Sérkennslustjóri - ingabirna@kopavogur.is