Sólhvörf er einn af bestu leikskólum í heimi

Föstudaginn 18. nóvember fengu fimm leikskólar í Kópavogi viðurkenningu sem fyrstu leikskólar heimsins til þess að geta kallað sig Réttindaskóla Unicef.
Við í Sólhvörfum höfum verið þátttakendur í þróunarverkefni í innleiðingu þessa verkefnis á leikskólastiginu og því gaman að uppskera eftir áhugaverða og krefjandi vinnu.
Elstu börn leikskólans voru fulltrúar okkar allra á stórri hátíð í Salnum þar sem viðurkenningarnar voru afhentar. Einnig söng risastór barnakór tvö lög og voru þau sér og okkur öllum til sóma.
Nú höldum áfram með verkefnið því til þess að halda viðurkenningunni þarf verkefnið áfram að vera lifandi í öllu skólastarfinu.